Tveir unnu 16 milljónir í Víkingalottó

Fyrsti vinningur kvöldsins gekk ekki út að þessu sinni.
Fyrsti vinningur kvöldsins gekk ekki út að þessu sinni.

Fyrsti vinningur gekk ekki út í Víkingalottóútdrætti kvöldsins en tveir skiptu með sér öðrum vinningi og fær hvor þeirra rúmar 16 milljónir króna í vinning. Miðarnir voru keyptir í Eistlandi og Finnlandi.

Einn var með hinn alíslenska þriðja vinning og hlýtur hann rúmlega 1,6 milljónir króna í vinning. Miðinn var keyptur í Prinsinum í Þönglabakka í Reykjavík. 

Þá voru þrír með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jókernum og hlýtur hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir í Bláfelli, Sauðárkróki, Olís Gullinbrú og Bitahöllinni Stórhöfða. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert