Fólk í vandræðum í Rússlandi

Facebook

Embætti ríkislögreglustjóra hefur heyrt af mörgum sem hafa lent í vandræðum eftir að hafa týnt skráningarkortinu (migration card) sem fólk fær við komuna til Rússlands. Þetta kemur fram á Facebook-síðu embættisins. 

„Allir sem koma til landsins eiga að fá svona kort, hvort sem ferðast er á Fan-ID eða vegabréfsáritun. Það er brýnt að passa vel upp á þetta kort og geyma það með öruggum hætti með vegabréfinu eða Fan-ID.

Það þarf að framvísa þessu korti í vegabréfaskoðun þegar landið er yfirgefið. Ef ekki er hægt að framvísa því við brottför getur það leitt til sektar. Þá krefjast hótelin þess einnig að þessu sé framvísað við innritun.

Ef þetta kort týnist þarf að fara á næstu lögreglustöð og óska eftir nýju. Það er ferlegt vesen að standa í því og þess vegna brýnum við fyrir öllum að passa vel upp á þetta,“ segir enn fremur í færslunni.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert