Gríðarleg spenna fyrir leikinn í dag

Fjöldi Íslendinga var mættur til Volgograd í gær og fylgdist …
Fjöldi Íslendinga var mættur til Volgograd í gær og fylgdist með útsendingu frá leik Króata og Argentínu. Gríðarleg spenna er í D-riðlinum á HM í Rússlandi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu fær gott tækifæri til að stíga stórt skref í átt að sextán liða úrslitum heimsmeistaramótsins þegar það mætir Nígeríu í Volgograd klukkan 15 í dag.

Eftir stórsigur Króata á Argentínumönnum í gær liggur fyrir að annaðhvort Ísland eða Nígería verður í öðru sæti D-riðils að leik loknum og í góðri stöðu til að komast áfram í keppninni.

Um þrjú þúsund Íslendingar verða á leiknum í dag og í þeirra hópi er Evgenía Mikaelsdóttir sem er komin til Volgograd í fyrsta skipti en þar féll afi hennar í síðari heimsstyrjöldinni. Hún fékk endanlega staðfest í gær að borin hefðu verið kennsl á hann en nafn hans er að finna í hvelfingu við stærstu styttu í Evrópu, Móðurlandið kallar, sem er steinsnar frá knattspyrnuvellinum í borginni, að því er fram kemur í viðtali við Evgeníu í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert