Gylfi Ólafsson nýr forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða

Gylfi Ólafsson, heilsuhagfræðingur og nýr framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða.
Gylfi Ólafsson, heilsuhagfræðingur og nýr framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða. Ljósmynd/Aðsend

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað Gylfa Ólafsson forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða. Í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu segir að ákvörðun ráðherra sé í samræmi við niðurstöðu lögskipaðrar nefndar sem metur hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana.

Þrír sóttu um embætti for­stjóra Heil­brigðis­stofn­un­ar Vest­fjarða sem vel­ferðarráðuneytið aug­lýsti laust til um­sókn­ar í apríl síðastliðnum. 

Gylfi er heilsuhagfræðingur og lauk B.Ed. gráðu sem grunnskólakennari frá Háskólanum á Akureyri, M.Sc. í hagfræði frá Stokkhólmsháskóla og hefur lagt stund á doktorsnám í heilsuhagfræði við Karolinska í Stokkhólmi frá árinu 2013. Gylfi var aðstoðarmaður Benedikts Jóhannessonar fjármála- og efnahagsráðherra árið 2017.

Í umsögn hæfnisnefndar um Gylfa segir meðal annars að hann hafi nokkuð víðfeðma reynslu úr stjórnkerfinu og þekkingu á heilbrigðismálum í gegnum nám sitt og verkefni. Í umsögninni er einnig vísað til þess að hann hafi mikinn áhuga á að gegna embætti forstjóra við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða og hafi kynnt sér vel starfsemi hennar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert