Grunur um ölvunarakstur í Kömbunum

Umferðarslys varð í Kömbunum í dag. Grunur er um ölvunarakstur.
Umferðarslys varð í Kömbunum í dag. Grunur er um ölvunarakstur. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Lögreglunni á Suðurlandi barst tilkynning um umferðarslys í Kömbunum rétt eftir hádegi í dag. Enginn slasaðist í árekstrinum en ökumaður annars bílsins er grunaður um ölvunarakstur og er í fangageymslu lögreglu.

Þrír aðrir minni háttar árekstrar áttu sér stað á Selfossi í dag.

Þá varð eitt slys á mótorkrossbrautinni á Selfossi í dag þar sem að ökumaður vélhjóls lærbrotnaði við keppni.

Sagt var frá því fyrr í dag að lögreglunni á Suðurlandi hafi borist tilkynning um líkfund á landi Arnarbælis í Ölfusi í morgun. Talið er að líkið sé af karlmanni sem leitað hefur verið í Ölfusá frá 20. maí.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert