Líkfundur í Ölfusá

mbl.is

Lík karlmanns sem leitað hefur verið í Ölfusá frá 20. maí fannst fyrir landi Arnarbælis í Ölfusi í morgun. 

Það voru menn á göngu við ána sem fundu líkið og tilkynntu um það til lögreglu.  Í frétt frá lögreglunni á Suðurlandi segir að björgunarsveitarmenn frá Björgunarfélagi Árborgar hafi aðstoðað lögreglu við vinnu á vettvangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert