Telur að lög hafi verið brotin

Frá fyrsta fundi borgarstjórnar, 19. júní.
Frá fyrsta fundi borgarstjórnar, 19. júní. mbl.is/Kristinn Magnússon

Skrifstofustjóri borgarstjórnar telur að ákvæði sveitastjórnarlaga um réttindi og skyldur kjörinna fulltrúa og siðareglur kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg hafi verið brotin á fundi borgarstjórnar þegar starfsmenn borgarinnar voru sakaðir um trúnaðarbrest og brot á starfsskyldum sínum án þess að það hafi síðar verið leiðrétt. 

Óskað er eftir því að forsætisnefnd borgarstjórnar taki til skoðunar að grípi til viðeigandi ráðstafana, þ.m.t. að leita álits siðanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þetta kemur fram í minnisblaði sem lagt var fram á fundi forsætisnefndar í gær.

Marta Guðjónsdóttir og Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins.
Marta Guðjónsdóttir og Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/​Hari

Marta sagði um trúnaðarupplýsingar væri að ræða

Á fyrsta fundi borgarstjórnar þann 19. júní fór fram umræða um vinnulag við framlagningu framboðslista við kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum borgarinnar í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga.

Við umræðu um tillögu borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna um stofnun umhverfis- og heilbrigðisráðs kom fyrst fram sú staðhæfing í ræðu borgarfulltrúans Mörtu Guðjónsdóttir að framlagning sameiginlegs lista Sjálfstæðisflokksins, Sósíalistaflokksins, Miðflokksins og Flokks fólksins við hlutfallskosningu í þau ráð, nefndir og stjórnir sem voru á dagskrá borgarstjórnar væri trúnaðarmál og innihéldi trúnaðarupplýsingar sem aðrir borgarfulltrúar hefðu ekki átt að hafa aðgang að fyrir fund borgarstjórnar. Það er ekki rétt. Upplýsingar um nöfn þeirra aðila sem lagt er til að taki sæti þegar kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum Reykjavíkurborgar eru teknar á dagskrá borgarstjórnar, geta aldrei verið trúnaðarmál en um það atriði vísast til sveitarstjórnarlaga og samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, segir í minnisblaðinu.

Á fundi með oddvitum framboða 13. júní óskaði skrifstofustjóri  eftir því að fá afhenta framboðslista allra flokka í síðasta lagi kl. 14:00 á föstudeginum 15. júní svo unnt væri að hefja yfirferð þeirra.

Upplýsingar sendar þremur dögum eftir að frestur rann út

„Undirrituð fundaði svo með starfsmanninum og borgarfulltrúanum Eyþóri Arnalds þann 14. júní á milli 13:00 og 15:00 þar sem farið var yfir kosningar í nefndir og ráð en þar kom jafnframt fram að Sjálfstæðisflokkurinn, Sósíalistaflokkurinn, Miðflokkurinn og Flokkur fólksins myndu skila sameiginlegum listum föstudaginn 15. júní. Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna skiluðu skrifstofu borgarstjórnar sínum framboðslistum föstudaginn 15. júní kl. 14:26.

Yfirferð á þeim hófst samdægurs og var fram haldið kl. 8:00 á laugardeginum en þá sendi undirrituð starfsmanni borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins fyrirspurn um það hvenær von væri á upplýsingum. Svar barst ekki fyrr en kl. 20:41 þann dag og gögnunum lofað á sunnudegi, en þá hafði starfsfólk skrifstofunnar verið sent heim og frekari yfirferð frestað.

Listar Sjálfstæðisflokksins, Sósíalistaflokksins, Miðflokksins og Flokks fólksins bárust skrifstofu borgarstjórnar ekki fyrr en mánudaginn 18. júní kl. 21:03 eða þremur heilum dögum eftir að frestur rann út. Starfsfólk skrifstofu borgarstjórnar vann við yfirferð frá 22:00 til 01:00 og hóf yfirferð og uppsetningu listanna aftur kl. 8:00 morguninn eftir. Því miður þurfti að gera athugasemdir við gögnin en í þau vantaði m.a. að tilnefna skrifara, listarnir voru ekki settir upp á réttan hátt auk þess sem þeir voru alveg óundirritaðir,“ segir meðal annars í minnisblaði  sem skrifstofustjóri borgarstjórnar ritar undir.

Eyþór Arnalds oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn.
Eyþór Arnalds oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn. mbl.is/Kristinn Magnússon

Leggur til að borgarfulltrúar verði sendir á námskeið

Í niðurstöðu segir: „Ekki er unnt að gera sér grein fyrir því hvað olli því að sumir borgarfulltrúar virtust halda það á fundi borgarstjórnar að trúnaður gilti um margnefnda lista, án tillits til skýrra ákvæða sveitarstjórnarlaga og samþykkta. Fundir borgarstjórnar eru opnir og öll fundargögn þeirra eru birt á vef Reykjavíkurborgar um leið og boðað er til fundar. Þar að auki er ekki að finna nein ummerki þess í erindi borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins að um framlagða lista skuli gilda einhver trúnaður enda er hvorki  tölvupósturinn trúnaðarmerktur né excel-skjalið sem fylgdi.

Þar að auki er vandséð hvers vegna borgarfulltrúarnir töldu efnislega nauðsyn á því að halda nöfnum leyndum frá áhugasömum áhorfendum/hlustendum í nokkra klukkutíma áður en kosning fór fram þar sem ekki er á nokkurn hátt um að ræða viðkvæmar persónulegar upplýsingar sem eigi að fara leynt.

Skrifstofa borgarstjórnar gengst fúslega við því að hafa upplýst fjölmarga aðila um skipan í ráð og nefndir á þriðjudeginum, einkum aðila frá fagsviðum Reykjavíkurborgar sem voru byrjuð að undirbúa boðanir funda. Engar upplýsingar voru þó sendar skriflega og ekki vannst tími til að birta listana á vefnum vegna tímahraks.

Lagt er til að forsætisnefnd samþykki að bæta við námskeiði fyrir borgarfulltrúa þar sem sérstaklega er farið yfir muninn á opnum og lokuðum fundum, muninn á fundargögnum þeirra funda, hvaða gögn eru trúnaðarmerkt og hvers vegna ákvæði eru um það í samþykktum að fundargögn borgarstjórnar skuli vera aðgengileg öllum.“

Möguleg viðbrögð forsætisnefndar vegna ásakana í garð starfsmanna Reykjavíkurborgar um trúnaðarbrest, leka á trúnaðargögnum og brot á starfsskyldum.

„Við umræðu um tillögu borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna um stofnun umhverfis- og heilbrigðisráðs í tengslum við fullyrðingar borgarfulltrúans Mörtu Guðjónsdóttir um trúnaðarbrest, tóku nokkrir borgarfulltrúar til máls og létu hafa eftir sér ásakanir í garð starfsmanna Reykjavíkurborgar, þ.m.t. undirritaðrar, starfsmanna skrifstofu borgarstjórnar og jafnvel allra ótilgreindra starfsmanna Ráðhúss Reykjavíkur.

Í umræðunni komu upp ásakanir um að starfsmenn hafi brotið trúnað, lekið trúnaðargögnum og/eða brotið starfsskyldur sínar á alvarlegan hátt.

Borgarfulltrúinn Hildur Björnsdóttir tók til máls á fundinum, hafði uppi ásakanir um leka á trúnaðargögnum og nafngreindi undirritaða í ræðustól, vitandi það að enginn maður utan borgarstjórnar getur tekið til máls á borgarstjórnarfundi.

Í siðareglum kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg kemur fram að kjörnir fulltrúar gegna störfum sínum af alúð og samviskusemi og gæta hagsmuna Reykjavíkurborgar. Í störfum sínum er kjörinn fulltrúi bundinn af lögum, reglum og samþykktum Reykjavíkurborgar, sem og sannfæringu sinni.

Kjörnir fulltrúar hafa ávallt í heiðri grundvallarreglur góðrar stjórnsýslu í störfum sínum, þ.m.t. gagnsæi í ákvarðanatöku, og framkvæma ekkert það sem er til þess fallið að vekja grunsemdir um að annað en lögmæt og málefnaleg sjónarmið ráði för við stjórn Reykjavíkurborgar.  

Í siðareglunum er einnig kveðið á um að kjörnir fulltrúar gæta þess að fara ekki út fyrir umboð sitt í störfum sínum og virða verkaskiptingu í stjórnkerfi Reykjavíkurborgar. Þeir sýna störfum og réttindum annarra kjörinna fulltrúa og starfsmanna Reykjavíkurborgar tilhlýðilega virðingu.

Niðurstaða: Undirrituð telur að bæði ákvæði svl. um réttindi og skyldur kjörinna fulltrúa og siðareglur kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg hafi verið brotnar í tilvitnaðri umræðu þegar starfsmenn Reykjavíkurborgar voru ásakaðir um trúnaðarbrest og brot á starfsskyldum sínum án þess að það hafi síðar verið leiðrétt. Samkvæmt 29. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 ber sveitarstjórnum að setja sér siðareglur sem ná til allra kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn og nefndum og ráðum sem sveitarstjórn skipar. Á grundvelli sömu laga hefur laga hefur Samband íslenskra sveitarfélaga skipað nefnd sem veitt getur álit um siðareglur og ætluð brot á þeim. Óskað er eftir því að forsætisnefnd taki til skoðunar að grípi til viðeigandi ráðstafana, þ.m.t. að leita álits siðanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Virðingarfyllst, Helga Björk Laxdal skrifstofustjóri borgarstjórnar,“ segir í niðurstöðu minnisblaðsins sem lagt var fram á fundi forsætisnefndar í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert