Fremur hæg suðlæg átt verður á landinu í dag. Þurrt og bjart veður verður að mestu um landið norðaustanvert en búast má við stöku síðdegisskúrum inn til landsins þar og allt að 23 stiga hita.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands í morgun.
Svalara verður um landið sunnan- og vestanvert og þungbúið. Rigning verður víða á Suðurlandi en annars úrkomuminna. Áfram suðlæg átt á morgun, 5-10 m/s og rigning með köflum eða skúrir í flestum landshlutum.
Heldur svalara verður á morgun en í dag og hiti 9 til 17 stig. Hlýjast verður austanlands. Dregur úr vætu þegar líður á morgundaginn og birtir til annað kvöld. Víða bjartviðri á landinu fyrir hádegi á sunnudag, en þykknar síðan upp um landið vestanvert með vaxandi sunnanátt og fer að rigna síðdegis, fyrst allra vestast.