Engin hætta reyndist á ferðum

Lítil mannlaus dugga sást við Óseyrarbrúna í morgun.
Lítil mannlaus dugga sást við Óseyrarbrúna í morgun. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Lögreglunni á Suðurlandi barst í morgun tilkynning um mannlausan bát skammt frá Óseyrarbrú. Var allt tiltækt lið kallað út en í ljós kom að engin hætta var á ferðum.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi reyndist um smáan bát að ræða sem hafði rekið frá landi. Enginn hafði verið um borð og fallið útbyrðis eins og óttast var í fyrstu og því engin hætta á ferðum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert