„Þetta er alveg hrikalegt“

Veðrið hefur ekki leikið við höfuðborgarbúa í sumar.
Veðrið hefur ekki leikið við höfuðborgarbúa í sumar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Bölvanlega hefur gengið að malbika stofnæðar á og í kringum höfuðborgarsvæðið það sem af er sumri vegna vætutíðar. Framkvæmdastjóri annars af stærstu malbikunarfyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu segir þetta verstu byrjun á sumri sem hann hafi séð.

Dæmi um stóra framkvæmd sem hefur beðið er Ártúnsbrekkan en hún var fræst fyrir nokkrum vikum og beðið er eftir nokkrum góðviðrisdögum í röð til að hægt sé að malbika þá fjölförnu leið.

„Við bíðum eftir tveimur til þremur sólarhringum með glampandi sól og þurrki. Svona verk þarf svoleiðis veður,“ segir Sigþór Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hlaðbæjar-Colas, við mbl.is. Hann bætir því við að starfsmenn fyrirtækisins vinni á vöktum allan sólarhringinn og hafi unnið við alls konar búta í sumar til að nýta alla þurra klukkutíma.

Framkvæmdir í Ártúnsbrekku bíða sólar.
Framkvæmdir í Ártúnsbrekku bíða sólar. mbl.is/Golli

Stóru verkefnin sitji hins vegar á hakanum og ekkert útlit er fyrir að þau verði malbikuð á næstunni. „Allir stóru bútarnir okkar bíða og við erum farnir að verða mjög órólegir,“ segir Sigþór og nefnir stóran kafla á Hellisheiði og bút Akranesmegin við Hvalfjarðargöng auk Ártúnsbrekkunnar.

„Það er ekkert í kortunum. Allar tíu daga spár eru með endalausri úrkomu, þetta er alveg hrikalegt,“ segir Sigþór og bætir við að það séu engar ýkjur að byrjunin á sumrinu sé sú versta í háa herrans tíð:

„Ég er búinn að vera mjög lengi í bransanum og þetta er versta byrjun á sumri sem ég hef séð. Við sjáum það á tölunum okkur. Það voru 30 úrkomudagar í maí af 31 degi og 26 af 30 í júní.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert