Tveir undir áhrifum fíkniefna

mbl.is/Hjörtur

Lögreglan á Akureyri stöðvaði för tveggja ökumanna sem reyndust undir áhrifum fíkniefna í umferðinni á Akureyri í gærkvöldi. Að öðru leyti var vaktin tíðindalítil að sögn varðstjóra. Ekkert fréttnæmt gerðist á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert