Þrjú þyrluútköll það sem af er degi

Frá vettvangi við Úlfljótsvatn. Tveir voru fluttir þaðan á Landspítalann …
Frá vettvangi við Úlfljótsvatn. Tveir voru fluttir þaðan á Landspítalann eftir bílslys. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Þyrlur Landhelgisgæslunnar hafa þrívegis verið kallaðar út vegna veikinda eða slysa það sem af er degi, samkvæmt tilkynningu frá Landhelgisgæslu Íslands. Tveir voru fluttir á Landspítalann vegna bílslyss við Úlfljótsvatn.

Á tólfta tímanum í dag var óskað eftir aðstoð vegna veikinda í Ólafsvík og hélt TF-SYN, þyrla Landhelgisgæslunnar, á staðinn og sótti sjúklinginn. Þyrlan lenti við Landspítalann í Fossvogi laust fyrir eitt.

Klukkan hálfþrjú óskaði Neyðarlínan svo eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna konu sem slasaðist í Reynisfjöru. TF-GNÁ, þyrla Landhelgisgæslunnar, var send á staðinn og sótti konuna við Skógafoss.

Þegar þyrlan tók á loft frá Skógafossi barst önnur beiðni frá Neyðarlínunni, að þessu sinni vegna bílslyss við Úlfljótsvatn og aftur var óskað eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Samkvæmt tilkynningu Gæslunnar var ákveðið að TF-GNÁ héldi í átt að Úlfljótsvatni en TF-SYN var sömuleiðis kölluð út með hæsta forgangi og send á staðinn.

Konan um borð í TF-GNÁ var lærbrotin og var ákveðið að hún færi með TF-SYN frá Úlfljótsvatni áleiðis á Landspítalann.  

Læknirinn um borð í TF-GNÁ gat því hugað að þeim sem lentu í bílslysinu á Úlfljótsvatni en þyrlan tók á loft þaðan með tvo slasaða klukkan 16:35 og lenti laust fyrir klukkan 17:00 við Landspítalann í Fossvogi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert