„Ber hagsmuni hestanna fyrir brjósti“

Sigríður hefur starfað við landsmót í mörg ár. Hún segir …
Sigríður hefur starfað við landsmót í mörg ár. Hún segir langflesta klára í toppstandi og þróunin sé jákvæð. mbl.is/Arnþór Birkisson

Dýralæknirinn Sigríður Björnsdóttir hefur tekið þátt í landsmótum hestamanna með einum eða öðrum hætti í hartnær 25 ár. Hún gegnir starfi dýralæknis hrossasjúkdóma hér á landi og sér um eftirlit og skoðun hestanna fyrir keppni.

„Mitt starf er að tryggja velferð hestanna, fyrirbyggja hvers kyns skaða eins og hægt er og að hestar fari óheilbrigðir í braut. Það er mikilvægt fyrir mig að fá þessa yfirsýn til þess að fá samanburð milli ára og landsmóta, svo við sjáum hvort þróunin sé jákvæð eða neikvæð.“

Sigríður hefur umsjón með stóru verkefni en um 800 hross eru með þátttökurétt á landsmótinu í ár. Skoðun og mælingar á hestum á landsmóti felast í að vega og meta heildarheilbrigði hestsins. „Heilbrigði er afstætt hugtak því við getum ekki vitað að fullu hvort hesturinn sé alveg heilbrigður. Við reynum að kanna hvort hann sé með áverka og ef hesturinn finnur augljóslega til fær hann ekki að keppa.“

Sjá viðtal við Sigríði í heild á baksíðu Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert