Loftbyssa, hnífur og meint fíkniefni

mbl.is

Á heimili manns, sem lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í nótt vegna gruns um fíkniefnaakstur, fundust meint fíkniefni, loftbyssa og hnífur.

Í frétt frá lögreglunni segir að eftir að lögreglan stöðvaði manninn í nótt hafi verið ákveðið að gera húsleit á heimili viðkomandi að fenginni heimild.

Þar fundust meint fíkniefni, amfetamín, kókaín, svo og sterar á víð og dreif í húsnæðinu. Einnig hnífur og loftbyssa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert