Rúllandi dekk lenti á bíl

mbl.is/Hjörtur

Ökumaður sem var á ferð við Kúagerði á Reykjanesbraut áleiðis til Keflavíkur í vikunni varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að dekk kom rúllandi úr gagnstæðri átt og lenti á framstuðara bifreiðar hans.

Skýringin á þessu var sú að dekk hafði losnað undan bifreið á sömu slóðum, sem ekið var í átt til Reykjavíkur, skoppað yfir á hinn vegarhelminginn og hafnað á fyrrnefndu bifreiðinni. Ekki urðu nein meiðsl á fólki en fjarlægja þurfti aðra bifreiðina með dráttarbifreið, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni.

Fleiri umferðaróhöpp hafa orðið í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum en engin þeirra meiri háttar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert