Ökumaður sem lögreglan stöðvaði á Laugavegi, við Vitastíg, um eitt í nótt var undir áhrifum fíkniefna og hann er einnig grunaður um hylmingu.
Fjórir ökumenn voru teknir grunaðir um ölvun á höfuðborgarsvæðinu í nótt og auk þess var einn stöðvaður á Kársnesbraut en hann hefur aldrei fengið ökuréttindi. Sá hefur hins vegar ekki látið það aftra sér frá því að vera undir stýri því lögregla hefur ítrekað stöðvað hann. Jafnframt var bifreiðin ótryggð og voru skráningarmerki hennar því klippt af.