Landsmótstjaldið risið á Sauðárkróki

Unnið að því að setja Landsmótstjaldið upp í dag.
Unnið að því að setja Landsmótstjaldið upp í dag. Ljósmynd/UMFÍ

„Við erum að ganga frá því síðasta. Margir eru búnir að koma á skrifstofuna til okkar að skrá sig og eru að undirbúa morgundaginn,“ segir Pálína Ósk Hraundal, annar af tveimur verkefnastjórum Landsmótsins sem verður á Sauðárkróki um helgina.

Mótið stendur yfir dagana 12. – 15. júlí á Króknum og samkvæmt mótshöldurum er búið að panta brakandi blíðu.

Á dagskránni á morgun er þriggja tinda ganga á Mælifell, Tindastól og Molduxa í Skagafirði. Gangan hefst klukkan 9:00 í fyrramálið og er gert ráð fyrir að henni ljúki klukkan 21:00 annað kvöld.

„Við erum búin að stika leiðina á Tindastól. En fólk þarf ekki endilega að ganga á alla tindana þrjá. Það er alveg hægt að ganga á einn ef viðkomandi vill það frekar,“ segir Pálína.

Gang­an er merkt sem rauður viðburður í móta­dag­skrá Lands­móts­ins. Það þýðir að þátt­töku­arm­band þarf til að fara í göng­una.

 Þrír litakóðar á viðburðum

Viðburðir Landsmótsins eru merktir með þremur litum, rauðu, gulu og grænum. Þeir viðburðir sem merktir eru rauðu eru kynningar og kennsla. Þátttökuarmband þarf til að taka þátt í þeim.

Gulu viðburðirnir eru keppnisgreinarnar sjálfar á Landsmótinu og þarf að sjálfsögðu armband til að taka þátt í þeim, en viðburðir sem merktir eru með grænu eru opnir fyrir alla.

Landsmótstjaldið er komið upp á Sauðárkróki og allt að verða …
Landsmótstjaldið er komið upp á Sauðárkróki og allt að verða klárt fyrir íþróttahátíð helgarinnar. Ljósmynd/UMFÍ

Landsmótið á Sauðárkróki er með nýju og breyttu sniði í ár. Það er opið öllum 18 ára og eldri sem hafa gaman af því að taka þátt í fjölbreyttum íþróttum, en auk íþrótta á daginn er boðið upp á fyrirlestra og skemmtanir alla helgina.

Föstudagurinn byrjar með morgunjóga en svo hefst keppni í golfi og boccía, götuhlaupi og metabolic og fleiri greinum. Landsmótið er svo sett síðdegis á föstudag og verður strax eftir það blásið til götupartýs og grillveislu sem Auðunn Blöndal og Steindi jr. stýra. Hljómsveitin Albatross með Sverri Bergmann í fararbroddi leikur þar ljúfa tóna.

Þessum viðburðaríka öðrum degi mótsins lýkur svo með miðnæturjóga og upphitun fyrir hina daga mótsins.

Dagskrá Landsmótsins í heild sinni má sjá hér

Vefsíða Landsmótsins

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert