Allt stefnir í verkfall á miðvikudag

Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, formaður samninganefndar ljósmæðra.
Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, formaður samninganefndar ljósmæðra. mbl.is/Hari

Yfirvinnuverkfall ljósmæðra hefst á miðnætti 18. júlí að óbreyttu eftir að upp úr slitnaði í kjaraviðræðum ljósmæðra og samninganefndar ríkisins enn eina ferðina í gær. Ljósmæður gera kröfu um 17-18 prósenta launahækkun en Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, formaður samninganefndar ljósmæðra, segir tilboð ríkisins ekki hafa náð 12 prósentum.

Samningar við ljósmæður hafa verið lausir frá því að gerðardómur á kjör þeirra rann út 1. september síðasta haust og segir Katrín Sif að yfirvinnuverkfallinu verði ekki afstýrt öðru vísi en með samningum. „Við erum búin að vera í viðræðum við ríkið í tíu mánuði,“ segir Katrín.

Katrín segir að viðræðurnar strandi hjá ríkinu þar sem hún telur að menn hafi áhyggjur af stöðugleika á markaði. „Sá stöðugleiki er löngu farinn með hækkununum hjá kjararáði, og ég hef enga trú á því að stöðugleikinn standi og falli með því hvernig komið er fram við okkur ljósmæður,“ segir Katrín.

Spurð nánar út í hvort það sé réttmætt að áætla að stéttir sem á eftir koma eigi eftir að fara fram á sömu hækkanir og ljósmæður koma til með að fá segist Katrín efast um að það verði raunin.

„Þegar almennir samningar losna, og hjá öðrum félögum innan BHM, er staðan ekki sambærileg við okkar. Innan BHM er ekkert félag með eins mikla vaktavinnubyrði og aðeins eitt félag er með hærri menntunarkröfu, það eru prófessorar innan BHM, og þeir eru með mun hærri laun. Næst á eftir okkur eru dýralæknar með fimm og hálfs árs nám og aðrir styttra,“ segir Katrín. „En samt erum við launalægri.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert