Tafir við Selfoss vegna umferðaróhapps

Umferðaróhapp varð við Ölfusárbrú í kvöld.
Umferðaróhapp varð við Ölfusárbrú í kvöld. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Þriggja bíla árekstur varð vestan megin við Ölfusárbrú, við bensínstöð Olís, á Selfossi um klukkan sjö í kvöld. Miklar tafir hafa verið á Suðurlandsvegi frá því að óhappið átti sér stað. Engin slys urðu á fólki. 

Umferð er stjórnað af lögreglu fram hjá vettvangi og samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi er búið að draga bifreiðarnar þrjár í burtu svo umferðartöfum ætti að fara að létta. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert