Bústaður og bíll brunnu til kaldra kola

Sumarbústaður og bifreið í Tungunum á Suðurlandi brunnu til kaldra kola síðdegis í dag. Viðbragðsaðilum barst tilkynning vegna eldsvoðans um klukkan hálffimm í dag.

Samkvæmt tilkynningunni logaði glatt í bústaðnum auk þess sem eldurinn hafði borist í bifreið sem stóð þar við. Þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang var bústaðurinn alelda og litlu hægt að bjarga.

Brann bústaðurinn til kaldra kola ásamt bifreiðinni sem er ónýt eftir. Enginn var í eða við bústaðinn þegar eldurinn kviknaði. Rannsókn lögreglu á vettvangi er lokið en eldsupptök eru enn óljós.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert