Veðurstofan spáir 10 til 18 stiga hita í dag. Hlýjast verður á Suðurlandi en á Norðausturlandi á morgun. Fremur hæg norðlæg átt verður í dag og léttskýjað um vestanvert landið en skýjað og stöku skúrir austan til.
„Sólskinið staldrar ekki lengi við hjá höfuðborgarbúum þar sem á morgun snýst í suðlæga átt, þykknar upp með deginum og fer að rigna annað kvöld, en léttskýjað verður þá um landið norðanvert,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands.
Snýst svo aftur í norðlæga átt á fimmtudag og rofar til sunnanlands en stöku skúrir fyrir norðan.