Spá þrumuveðri og jafnvel hagléli

Veðurútlit á hádegi í dag.
Veðurútlit á hádegi í dag.

Mjög hlýtt loft verður yfir Íslandi í dag, en það er því miður að flýta sér í vesturátt að því er segir í hugleiðingum vakthafandi veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Hvassviðri verður á Suðausturlandi í dag og einnig eftir hádegi á Snæfellsnesi og Vestfjörðum, með snörpum vindhviðum.

Er ferðafólki bent á að hafa þetta í huga, en gul viðvörun hefur verið gefin út fyrir Faxaflóa, Breiðafjörð, Vestfirði og Suðausturland.

Kuldaskil koma upp að Suðausturlandi undir hádegi og eftir það færist úrkoman hratt yfir landið. Það ætti því að fara að rigna á höfuðborgarsvæðinu um fimmleytið í dag, eftir að hitinn þar hefur farið upp fyrir 20 gráðurnar. „Það er að segja ef það hefur ekki gert þrumuveður áður! Því þessu hlýja lofti fylgja talsverðar líkur á öflugum skúradembum með þrumum, eldingum og jafnvel hagli víða um land, þó helst suðvestan til,“ segir í textaspánni.

Útivistarfólk er því bent á að fylgjast vel með hættunni á eldingarveðri.

Hitinn gæti náð 24 stigum yfir hádaginn og verður hlýjast vestanlands, en kólnar talsvert eftir að kuldaskilin fara yfir. 

Veðurvefur mbl.is

Austlægar áttir verða á landinu á mánudag og þriðjudag og væta austan til. Lægðarmiðjan fer síðan yfir landið á miðvikudag og verður þá rigning í flestum landshlutum. Það er síðan útlit fyrir skúrir á fimmtudag, en samfellda rigning sunnan- og vestanlands næsta föstudag samkvæmt langtímaspánni og skúraveður næsta laugardag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert