Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Snæfellsnesi voru kallaðar út vegna strandaðs báts á Breiðafirði.
Tveir menn voru í bátnum og amaði ekkert að þeim þegar björgunarmenn komu að bátnum.
Einn hópur björgunarmanna bíður nú hjá bátnum eftir að flæði að en þá á að freista þess að koma honum á flot, að því er segir í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.