Skólavörðustígur í öllum regnbogans litum

Regnbogamálun Hinsegin daga er orðinn fastur liður sem setningarathöfn hátíðarinnar. …
Regnbogamálun Hinsegin daga er orðinn fastur liður sem setningarathöfn hátíðarinnar. Þetta er í annað sinn sem Skólavörðustígurinn er málaður. mbl.is/Valli

Skólavörðustígur var í hádeginu málaður í regnbogalitum í tilefni Hinsegin daga í Reykjavík, en þá setti Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hátíðina formlega.

Til stendur að mála Skólavörðustíg, frá Bergstaðastræti að Bankastræti, í öllum litum regnbogans af gestum og gangandi undir leiðsögn starfsfólks Reykjavíkurborgar. Stjórn Hinsegin daga hvetur gesti á öllum aldri til að mæta og taka þátt í opnun hátíðarinnar.

Hinsegin dagar hafa verið haldnir árlega í Reykjavík frá árinu 1999 og hefur hátíðin vaxið og dafnað með hverju ári. Í ár standa Hinsegin dagar frá 7. til 12. ágúst og á dagskránni eru ríflega 30 viðburðir af ýmsum toga.

Hinsegin dagar ná hápunkti sínum laugardaginn 11. ágúst með gleðigöngu og útihátíð. Að þessu sinni fer gleðigangan frá Sæbraut við tónlistarhúsið Hörpu að Hljómskálagarðinum þar sem útihátíð ársins fer fram. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert