Loka Sæbraut við Snorrabraut vegna gleðigöngunnar

Rauði liturinn sýnir hvar í borginni götum verður lokað. Guli …
Rauði liturinn sýnir hvar í borginni götum verður lokað. Guli liturinn sýnir leið göngunnar. Kort/Lögreglan

Vegna gleðigöngu Hinsegin daga, sem fer fram á morgun, verður Sæbraut lokuð við Snorrabraut frá kl 12 til kl 15 og Geirsgata lokuð við Ægisgötu frá kl 12 til 15, að því er lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greinir frá.

Vegna þessa verður einungis hægt að komast að og frá Vesturbæ og Örfirisey um Hringbraut meðan lokun varir.

Í ár verður farið af stað frá Sæbraut við Faxagötu, rétt við tónlistarhúsið Hörpu. Uppstilling byrjar kl. 12 en gangan hefst kl. 14. 

Gengið verður eftir Kalkofnsvegi, Lækjargötu, Fríkirkjuvegi og endað á Sóleyjargötu, en svo taka við glæsilegir útitónleikar í Hljómskálagarðinum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert