Að mörgu er að hyggja í höfuðborg. Ýmis tæki og tól létta starfsmönnum lífið þegar kemur að því að þrífa fjölmargar gangstéttir í henni Reykjavík.
Ungur starfsmaður setur öryggið greinilega á oddinn og notar eyrnaskjól og augnhlífar til þess að koma í veg fyrir skaða sem orsakast gæti vegna notkunar á hreinsitækinu.
Fallega grænt grasið ber merki þess að það hafi fengið næga vökvun í sumar.
Það er um að gera að nota tækifærið á meðan þurrt er til þess að hreinsa til í borginni.