Segir ásakanir ekki eiga við rök að styðjast

Þóra Björg á yfir hundrað A-landsliðsleiki að baki.
Þóra Björg á yfir hundrað A-landsliðsleiki að baki. mbl.is/Ómar

Þórður Georg Lárusson, fyrrverandi landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, hefur gefið út yfirlýsingu vegna fyrirlestrar Þóru Bjargar Helgadóttur, fyrrverandi landsliðskonu, sem hún hélt á alþjólegri ráðstefnu sem bar yfirskriftina „Kyn og Íþróttir“, í Háskólanum í Reykjavík í gær.

Þóra fjallaði í fyrirlestrinum um landsliðsþjálf­ara, sem hún nafngreindi ekki, sem þekkti ekki nöfn leik­manna og reyndi drukkinn í einni landsliðsferð að fá landsliðskon­ur með sér upp á her­bergi. Þá talaði hún einnig um slakan aðbúnað kvennalandsliðsins á þeim tíma þar sem æfingar voru auðveldar og vellir slakir.

Í yfirlýsingu sinni segir Þórður að Þóra hafi borið sig „alvarlegum ávirðingum“ og að þær ásakanir eigi ekki við nein rök að styðjast. Þá kemur einnig fram að honum hafi verið misboðið og þótt sem vegið væri að æru sinni.

Yfirlýsingu Þórðar má lesa í heild sinni hér að neðan.

„Til þeirra sem málið varðar

Á ráðstefnu Háskólans í Reykjavík í gær, sem bar yfirskriftina „Kyn og íþróttir“ hélt Þóra Helgadóttir tölu undir yfirskriftinni „Girl in a man‘s world – A story from a former professional football player“. Í máli sínu vék hún að undirrituðum og bar mig alvarlegum ávirðingum.

Þær ásakanir eiga ekki við nein rök að styðjast.

Svo langt var gengið að vísa til þess að ég eigi að hafa verið drukkinn í landsliðsverkefni og reynt að fá leikmenn liðsins upp á herbergi með mér. Þessum ásökunum vísa ég alfarið á bug.

Ég hef aldrei á starfsævi minni blandað saman áfengi og vinnu og því síður hefði mér dottið í hug að reyna að fá leikmenn til þess að koma upp á herbergi með mér. Það geta þeir sem mig þekkja vitnað til um. Það er ljóst að ef ég hefði verið undir áhrifum áfengis og freistað þess að misnota stöðu mína hefði verið tekið strax á slíku máli.

Mér er misboðið að vegið sé að persónu minni og æru með svona aðdróttunum.

Ég hef alla tíð freistað þess að leggja mig allan fram í verkefnum mínum, hvaða nafni sem þau nefnast. Það kann vel að vera að leikmenn liðsins hafi verið ósáttir við þjálfunaraðferðir mínar, enda lögðust þær gegn því að ég héldi áfram með liðið. Það er eitt. Það er hins vegar allt annað að bera mig alvarlegum ásökunum um að ég hafi freistað þess að misnota aðstöðu mína. Það myndi ég aldrei gera og vísa ég þeim ásökunum algerlega á bug.

Ég mun ekki tjá mig frekar um þetta mál.

Þórður Georg Lárusson“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert