Þrengt að umferð á Hellisheiði

Malbikað á Hellisheiði.
Malbikað á Hellisheiði. mbl.is/Kristinn Magnússon

Malbikaðar verða báðar akreinar til vesturs á Suðurlandsvegi, um 1 km á milli Litlu kaffistofunnar og vegamóta við Bolöldur, í dag. Ölfusárbrú við Selfoss er lokuð til hádegis. Umferð er beint um Óseyrarbrú (34) og Þrengsli (39) þangað til. Gangandi vegfarendur komast þó um Ölfusárbrú, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Áætlað er að malbikað verði á Hellisheiði til klukkan 18 og verður einni akrein lokað í einu og þrengt að umferð.

Steypuvinna við Ölfusárbrú.
Steypuvinna við Ölfusárbrú. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert