Hefðbundið leiðakerfi rofið í kvöld

Næturakstur tekur við í nótt klukkan eitt eftir miðnætti.
Næturakstur tekur við í nótt klukkan eitt eftir miðnætti.

Strætó mun í dag aka samkvæmt hefðbundinni laugardagsáætlun, frá morgni og til klukkan 22.30. Þó má búast við töfum fyrri hluta dags vegna Reykjavíkurmaraþons, að því er fram kemur í tilkynningu frá byggðasamlaginu.

Frítt verður í strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu í allan dag og eru ökumenn hvattir til að leggja í kringum Borgartún eða Laugardalshöll og nýta sér svokallaðar „strætóskutlur“ í miðbæinn, en um er að ræða strætisvagna sem ganga án sérstakrar tímatöflu frá Laugardalshöll, um Borgartún að Hlemmi og upp að Hallgrímskirkju, og þá til baka.

Munu þær ganga frá klukkan 07.30 og til klukkan eitt eftir miðnætti, en almennu leiðakerfi Strætó má hins vegar skipta í þrjá fasa yfir laugardaginn:

1. fasi - Hefðbundin laugardagsáætlun til 22.30

Á Menningarnótt mun Strætó aka samkvæmt hefðbundinni laugardagsáætlun frá morgni til klukkan 22:30. Aukavagnar verða notaðir yfir daginn til þess aðstoða þær leiðir sem kunna að verða fyrir álagi. Stór hluti miðbæjarins verður lokaður fyrir bílaumferð og margar leiðir sem aka um miðbæinn þurfa að fara hjáleiðir um Snorrabraut, Hringbraut og Gömlu-Hringbraut.

Farþegar eru hvattir til þess að fylgjast með tilkynningum á heimasíðu Strætó og nýta sér Strætó-smáforritið til þess að sjá staðsetningu vagnanna í rauntíma.  

2. fasi - Sérstöku „tæmingarkerfi“ komið á milli kl. 23.00 og 01.00

Klukkan 22.30 verður hefðbundið leiðakerfi Strætó rofið og sérstöku „tæmingarkerfi“ verður komið á klukkan 23.00, sem miðar að því að koma gestum Menningarnætur heim eins fljótt og kostur er. Hver leið verður merkt bókstaf og munu þær keyra frá Hlemmi eða BSÍ á mismunandi áfangastaði innan höfuðborgarsvæðisins. Rúmlega 70 strætisvagnar verða sendir eftir þörfum til þess að taka þátt í tæmingu miðbæjarins.

Hér má sjá hvernig þessar leiðir líta út á gagnvirku korti, en einungis er ekið í átt frá miðbænum, ekki til baka. Lista yfir þessar leiðir má finna neðst í fréttinni.

3. fasi - Næturakstur tekur við kl. 01.00

Hefðbundinn næturakstur Strætó mun taka við kl. 01.00 að lokinni tæmingu miðbæjarins. Áætluð enduropnun miðbæjarins fyrir umferð er milli klukkan 01.00 og 02.00 og því munu fyrstu ferðir á hverri næturleið einungis aka frá Hlemmi. Ekki verður frítt í næturvagnana en stakt fargjald með þeim er 920 kr. Handhafar Strætókorta þurfa ekki að greiða aukalega fyrir far með næturvögnunum. Frekari upplýsingar um næturakstur Strætó má finna hér.

Brottfarir frá Hlemmi og BSÍ frá 23.00 til 01.00:

Leið A: Bústaðavegur - Austurbær

Akstursleið: Teigar – Sund – Vogar – Gerði – Bústaðavegur – Háaleiti

Leið B: Breiðholt

Akstursleið: Sæbraut - Mjódd – Bakkar – Hólar – Berg – Fell – Seljahverfi

Leið G: Grafarvogur

Akstursleið: Ártún – Gullinbrú – Foldir – Hús – Rimar – Borgir – Víkur – Staðir

Leið H: Garðabær - Hafnarfjörður

Akstursleið: Hamraborg – Ásgarður – Reykjavíkurvegur – Fjörður – Hringbraut – Vellir

Leið K: Kópavogur

Akstursleið: Hamraborg – Digranes – Hjallar – Lindir – Salir – Kórar – Vatnsendi

Leið M: Grafarholt – Mosfellsbær*

Akstursleið: Vesturlandsvegur – Grafarholt – Úlfarsárdalur - Mosfellsbær

(Ferð verður farin frá Háholti út á Kjalarnes kl. 00.30)

Leið N: Árbær - Norðlingaholt

Akstursleið: Suðurlandsbraut - Ártún – Rofabær – Selásbraut – Norðlingaholt

Leið V: Vesturbær - Seltjarnarnes

Akstursleið: Þorragata – Hagar – Nesvegur – Seltjarnarnes – Grandar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert