Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í kringum Reykjavíkurmaraþonið, sem fram fór í morgun. Flytja þurfti á bilinu 7-9 hlaupara til aðhlynningar á slysadeild sökum örmögnunar og er það minna en mörg fyrri ár.
Þá fengu nokkrir tugir hlaupara aðhlynningu í sjúkratjöldum sem voru staðsett við brautina og í endamarkið, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu. Heilt yfir gekk dagurinn vel og færri hlauparar sem þurftu aðhlynningu í ár en oft áður.
Talsmaður slökkviliðsins segir að fólk verði stundum svo þreytt á hlaupunum að það viti vart hvað það heiti þegar það kemur í mark. Sumir haldi einnig að þeir séu í betra formi en raun ber síðan vitni og svo geti dagsformið verið misjafnt, þannig að fólk örmagnast eða fær krampa í vöðvana.
Alls voru 14.579 hlauparar skráðir til þátttöku í Reykjavíkurmaraþoninu, sem í dag fór fram í 35. sinn.