Teljari í dæluskúr gaf sig

Unnið að því að hreinsa upp olíuna sem fór í …
Unnið að því að hreinsa upp olíuna sem fór í höfnina á Fáskrúðsfirði. mbl.is/Albert Kemp

Teljari í olíudæluskúr gaf sig með þeim afleiðingum að olía spýttist úr honum, flæddi úr skúrnum og í höfnina á Fáskrúðsfirði en verið var að dæla olíu um borð í uppsjávarskipið Hoffell SU-80 þegar óhappið varð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skeljungi.

„Starfsmaður við dælinguna fann fljótlega olíulykt og brást við með því að stöðva þegar dælingu. Ekki [er] hægt að segja til með nákvæmum hætti um það hve mikið magn lak í sjóinn eins og er.

Þegar var tilkynnt til yfirvalda um slysið og allir tiltækir menn kallaðir til. Óskað var eftir aðstoð björgunarsveitarinnar á staðnum, Geisla, sem vann afar gott starf við að hefta útbreiðslu lekans. Bátar björgunarsveitarinnar slæddu olíuna af sjónum og söfnuðu í flekk sem síðan var soginn upp með dælubíl. Fljótt var þannig náð góðum tökum á útbreiðslu olíunnar og stjórn á ástandinu. Á sama tíma var ráðist í þrif í kringum dæluskúrinn. Afar góðar aðstæður voru til hreinsunarstarfs, þar sem veður var mjög gott á svæðinu, hægur andvari sem stóð inn fjörðinn, þurrt og bjart,“ segir í tilkynningu Skeljungs.

Aðstæður verða yfirfarnar á nýjan leik í dag. Farið verður strax í að skoða hvers vegna teljarinn gaf sig. Ekki er sams konar teljari í notkun annars staðar hjá félaginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert