Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði för sjö ökumanna í gærkvöldi og í nótt sem voru undir áhrifum annaðhvort áfengis eða fíkniefna.
Af þeim voru tveir stöðvaðir í vesturhluta Reykjavíkur og einn í austurhluta hennar. Einn var stöðvaður í Hafnarfirði og tveir í Kópavogi og var annar þeirra einnig með fíkniefni á sér.
Að lokum var bifreið stöðvuð á Vesturlandsvegi en ökumaður er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá reyndist ökumaður sviptur ökuréttindum vegna fyrri afskipta lögreglu.