Ógnaði konu með hnífi

mbl/Arnþór

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók karlmann snemma í morgun eftir að hann hafði ógnað konu með hnífi í íbúð í miðborginni. Konan náði að flýja út úr íbúðinni og leita sér aðstoðar lögreglu.

Lögregla fór á vettvang og var karlmaðurinn handtekinn í kjölfarið. Hann var svo vistaður í fangaklefa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert