Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti slasaða konu á Esjuna í gærkvöldi. Konunni skrikaði fótur og bar fyrir sig handleggi með þeim afleiðingum að hún fór úr olnbogalið. Þyrlan lenti á Hábungu á Esjunni en konan var staðsett þar rétt fyrir neðan.
Tilkynningin barst slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu upphaflega en vegna þess hve ofarlega konan var í fjallinu var ákveðið að kanna hvort að þyrla Landhelgisgæslunnar væri á flugi nálægt slysstað. Svo heppilega vildi til að það var verið að nota þyrluna við æfingar í Hvalfirði.
„Að sækja einstakling efst upp á Hábungu á Esjunni er heljarinnar mál. Það vildi þannig til að þyrlan var yfir Hvalfirðinum,“ segir vaktstjóri slökkviliðsins í samtali við mbl.is.
Þyrlan kom því við á Esjunni á leið sinni úr Hvalfirði og sótti konuna sem var send á spítala til aðhlynningar.