​Nýr göngustígur fyrir hreyfihamlaða við Fjaðrárgljúfur

Göngustígurinn er uppbyggður malarstígur, að jafnaði 1,6 metrar á breidd.
Göngustígurinn er uppbyggður malarstígur, að jafnaði 1,6 metrar á breidd. Ljósmynd/Umhverfisstofnun

Í sumar hefur verið unnið að gerð göngustígs við Fjaðrárgljúfur frá Lakavegi að útsýnispalli við gljúfrið. Fyrirtækið Stokkar og steinar gerir stíginn en hann er hannaður til að vera fær hjólastólum fullkláraður.

Þetta kemur fram á vef Umhverfisstofnunar.

Þar segir, að göngustígurinn sé uppbyggður malarstígur, að jafnaði 1,6 metrar á breidd. Geogrid sé notað á blautustu köflunum, þunnt plastnet, sem sett er undir mölina til að koma í veg fyrir að mold og möl blandist saman og að stígurinn sígi þannig að hann fljóti í raun ofan á votlendinu.

„Framkvæmdin er samvinnuverkefni Umhverfisstofnunar, landeigenda og sveitarfélagsins. Megintilgangurinn er að draga úr álagi á náttúru svæðisins með stýrðri umferð og bæta um leið aðgengi fyrir hreyfihamlaða. Göngustígurinn hefur verið opnaður og er hægt að ganga frá útskoti við Lakaveg.

Framkvæmdin er samvinnuverkefni Umhverfisstofnunar, landeigenda og sveitarfélagsins. Megintilgangurinn er að …
Framkvæmdin er samvinnuverkefni Umhverfisstofnunar, landeigenda og sveitarfélagsins. Megintilgangurinn er að draga úr álagi á náttúru svæðisins með stýrðri umferð og bæta um leið aðgengi fyrir hreyfihamlaða. Ljósmynd/Umhverfisstofun

Umhverfisstofnun bendir á að takmörkuð bílastæði eru við Fjaðrárgljúfur miðað við þann gríðarlega fjölda gesta sem heimsækja svæðið dag hvern. Eins og áður hefur komið fram er svæðið illa farið vegna ágangs ferðamanna. Hefur verið brugðist við því með aukinni landvörslu, uppbyggingu innviða og stýrðri umferð um svæðið,“ segir í tilkynningunni.

Enn fremur segir, að því miður fari ekki allir gestir eftir reglum sem gildi á svæðinu. Þess vegna gangi illa að græða upp sár í gróðursverðinum á hluta svæðisins og sé þar helst að nefna brúnir Fjaðrárgljúfurs.

„Mikilvægt er að við tökum höndum saman og upplýsum gesti um mikilvægi þess að fara eftir þeim reglum sem gilda á náttúruverndarsvæðum svo okkur takist að vernda þau gegn ágangi og koma í veg fyrir lokanir,“ segir stofnunin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert