Pósthússtræti opnað fyrir akandi umferð

Kort/Reykjavíkurborg

Miklar framkvæmdir standa nú yfir í Tryggvagötu við endurgerð götunnar milli Pósthússtrætis og Lækjargötu. Auk þess stendur samtímis yfir vinna við Bæjartorg, þar sem Bæjarins bestu hafa verið með söluskýli. Á meðan á þessum framkvæmdum stendur er lokað fyrir umferð um gatnamót Tryggvagötu og Pósthússtrætis, að því er segir á vef Reykjavíkurborgar.

Af þessum sökum hefur Pósthússtræti verið opnað fyrir akandi umferð, en alla jafna er Pósthússtræti göngugata frá 1. maí til 1. október. Ökutæki munu þá komast um Pósthússtræti til norðurs og Hafnarstræti til vesturs. Einstefnu í Hafnarstræti og Naustinni hefur verið snúið tímabundið vegna framkvæmdanna. Austurstræti, milli Pósthússtrætis og Ingólfstorgs, verður áfram göngugata til 1. október.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert