Stöðvuðu ólöglegan innflutning á búrfugli

Búrfuglinn var fluttur var ólöglega til landsins í bíl með …
Búrfuglinn var fluttur var ólöglega til landsins í bíl með Norrænu um miðjan síðasta mánuð.

Búrfugl sem fluttur var ólöglega til landsins í bíl með Norrænu um miðjan ágúst var sendur úr landi í síðustu viku.

Í tilkynningu frá Matvælastofnun kemur fram að fuglinum var haldið í einangrun undir eftirliti Matvælastofnunar á Seyðisfirði þar til hann var sendur úr landi í síðustu viku þar sem leyfi til innflutnings lá ekki fyrir og ekkert heilbrigðisvottorð fylgdi fuglinum. Samkvæmt reglugerð eiga innflutt gæludýr sem ekki uppfylla skilyrði vegna innflutnings að vera send úr landi eða aflífuð.

Innflytjendur búrfugla þurfa að afla innflutningsleyfis Matvælastofnunar og leggja fram heilbrigðisvottorð frá dýralækni fyrir innflutning. „Þar að auki skulu búrfuglar dvelja í einangrun í fjórar vikur í aðstöðu sem samþykkt hefur verið af Matvælastofnun. Gæludýr sem hafa innflutningsleyfi Matvælastofnunar er einungis heimilt að flytja inn um Keflavíkurflugvöll,“ segir í tilkynningu frá Matvælastofnun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert