Rukkaðir um tæp tvö og sex þúsund

Ráðgert er að gjaldtaka hefjist á sama tíma og framkvæmdum …
Ráðgert er að gjaldtaka hefjist á sama tíma og framkvæmdum lýkur í Vaðlaheiðargöngum 1. desember nk. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

„Það má gera ráð fyrir því að bílar sem vega yfir þrjú og hálft tonn verði rukkaðir um allt að sex þúsund krónur en bílar sem vega minna verði rukkaðir um tæplega tvö þúsund krónur.“

Þetta segir Valgeir Bergmann, framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga, í Morgunblaðinu í dag um gjaldtöku sem ráðgert er að hefjist þegar göngin verða opnuð 1. desember næstkomandi. Samkvæmt núverandi áætlunum verða heildartekjur af gjaldtökunni frá 800 milljónum króna til eins milljarðs króna.

Til að innheimta gjaldið þegar ökumenn eiga leið um göngin verður notast við nýja tækni byggða á númeraplötugreiningu sem er lítt þekkt hér á landi.

„Það verða myndavélar við göngin sem taka mynd af bílunum og lesa um leið númerið líkt og gert þegar fólk er með áskrift í Hvalfjarðargögnum,“ segir Valgeir. Reynist viðkomandi bíll ekki í áskrift þá er eigandi bílsins fundinn í eigendaskrá og rukkun send í heimabankann.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert