Varað við versnandi akstursskilyrðum

mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Spáð er allhvassri eða hvassri suðvestanátt norðan til á landinu fram á nótt samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands, en slyddu eða snjókomu til fjalla á morgun með versnandi akstursskilyrðum í þeim landshluta.

Spáð er einnig snjókomu í fyrramálið um tíma á Hellisheiði og upp úr hádegi má búast við hvössum vindstrengjum við fjöll suðaustanlands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert