Endurvekja þarf traust Orkuveitunnar

Bæjarstjórn Akraness telur ljóst að ímynd Orkuveitu Reykjavíkur hafi beðið …
Bæjarstjórn Akraness telur ljóst að ímynd Orkuveitu Reykjavíkur hafi beðið hnekki og endurvekja þarf traust og trúverðugleika fyrirtækisins. mbl.is/Árni Sæberg

Bæjarstjórn Akraness harmar þá stöðu sem upp er komin í starfsmannamálum Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og leggur áherslu á að nýhafin rannsókn á vinnustaðamenningu innan fyrirtækisins verði til lykta leidd með fagmannlegum hætti og úrbætur gerðar.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun frá bæjarstjórn Akraness varðandi málefni OR. Akraneskaupstaður á 5,528 % í Orkuveitu Reykjavíkur.

Bæjarstjórnin styður ákvörðun stjórnar um að samþykkja ósk Bjarna Bjarnsonar forstjóra um tímabundið leyfi meðan nauðsynleg rannsókn fer fram og styður jafnframt tímabundna ráðningu Helgu Jónsdóttur sem forstjóra.

Í ályktuninni segir að eigendur vilja að litið verði til fyrirtækisins sem trausts samstarfsaðila sem eftirsóknavert sé að starfa fyrir og með. Bæjarstjórnin telji hins vegar ljóst að ímynd fyrirtækisins hafi beðið hnekki og endurvekja þarf traust og trúverðugleika fyrirtækisins. „Ekkert fyrirtæki er sterkara en sá mannauður sem þar hefur byggst upp,“ segir í ályktuninni.

Bæjarstjórn Akraness segir jafnframt að standa þurfi vörð um allt hið góða í starfseminni og bæta úr því sem miður virðist hafa farið. Óæskileg hegðun og framkoma í garð starfsmanna og þeirra í milli verði ekki liðin.

„Það er von bæjarstjórnar Akraness að starfsmenn og stjórnendur OR leggi rannsókninni lið með það að markmiði að bæta vinnustaðamenningu fyrirtækisins.“  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert