TF-GNA, þyrla Landhelgisgæslunnar, lenti á Ísafjarðarflugvelli um sex í kvöld með einn úr áhöfn togarans Frosta-ÞH229, sem eldur kom upp í á Halamiðum nú síðdegis. Sjúkraflugvél beið á flugvellinum og var haldið beint með manninn á Landspítalann til aðhlynningar samkvæmt heimildum mbl.is.
Tólf eru í áhöfn Frosta og fram kom í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni nú síðdegis að allir væru heilir á húfi, en hugsanlegt sé að einn skipverji sé með reykeitrun.
TF-SYN flaug vestur með fimm slökkviliðsmenn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og var gert ráð fyrir að hún yrði komin að Frosta um sexleytið. Þá er áætlað að varðskipið Týr verði komið að skipinu laust fyrir klukkan 19:00.
Til stóð að togarinn Sirrý ÍS36, sem var kominn að Frosta rétt fyrir klukkan fimm í dag, tæki hann í tog til hafnar, en búið er að einangra eldinn í vélarrúminu.
Sjá staðsetningu Frosta ÞH á korti