Telur Helga hafa brotið siðareglur RÚV

Sandrius Ungurys starfaði hjá Brimborg um tíma. Brimborg hafnar því …
Sandrius Ungurys starfaði hjá Brimborg um tíma. Brimborg hafnar því að honum hafi verið greidd lægri laun en öðrum starfsmönnum með sambærilega mentun. Skjáskot/Kveikur

Brimborg hafnar því að fyrirtækið hafi komið illa fram við erlenda starfsmenn, líkt og fram kom í fréttaskýringaþættinum Kveik, og telur Helga Seljan, fréttamann Kveiks, hafa brotið siðareglur RÚV með umfjölluninni. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Brimborg sendi frá sér nú síðdegis.

Í þættinum, sem fjallaði um starfsumhverfi erlends vinnuafls á Íslandi, var rætt við lit­háíska verk­fræðing­inn Sandrius Ung­urys sem m.a. sagðist hafa unnið um tíma hjá Brimborg og notið þar lakari kjara en íslenskir starfsmenn.

„Brimborg harmar ef atvinnurekendur hér á landi hafi komið illa fram við slíka starfsmenn og nýtt sér bágar aðstæður þeirra. Það á hins vegar ekki við um Brimborg, jafnvel þó að annað hafi verið gefið í skyn í þættinum,“ segir í yfirlýsingunni. Fyrirtækið hafi verið með starfsmenn frá starfsmannaleigum í vinnu í nokkur misseri, en sé nú að mestu leyti hætt því. „Í dag starfa hjá fyrirtækinu aðeins þrír slíkir starfsmenn tímabundið í 2 vikur í afleysingum.“

Á þeim tíma er Brimborg nýtti sér starfsmenn frá starfsmannaleigum í meira mæli, hafi hins vegar verið gengið úr skugga um að launakjör þeirra og aðbúnaður væri í samræmi við landslög og kjarasamninga.

„Í samningum Brimborgar við starfsmannaleigur hafi ávalt verið ákvæði sem tryggja það en ef frávik hafa komið í ljós hefur Brimborg gripið í taumana í samræmi við ábyrgð sína,“ segir í yfirlýsingunni. Brimborg beri umhyggju fyrir öllum 300 starfsmönnum sínum, hvort sem þeir vinna starfi beint hjá fyrirtækinu eða séu ráðnir í gengum starfsmannaleigur og fordæmi  misnotkun á þessu sviði.

Í þættinum hafi verið haldið fram að Sandrius hafi verið bifvélavirki með reynslu. Slíka menntun og reynslu þurfi hins vegar að sannreyna og slíka viðurkenningu hafi skort í þessu máli. Um þetta hafi fréttamanni Kveiks verið kunnugt um það og fullyrðing þáttarins sé því röng.

Segir Brimborg ferlið heita „Viðurkenning á erlendu starfsnámi“ og vera aðgengilegt á netinu á íslensku, ensku og pólsku. Hafi sumir starfsmenn Brimborgar þegar gengið í gegnum ferlið, en meðan á því stendur gefist þeim kostur á því að vinna undir handleiðslu bifvélavirkjameistara hjá Brimborg.

Launakjör starfsmannsins sem rætt var við í þættinum hafi engu að síður verið 14,1% hærri en taxti Eflingar fyrir ófaglærða með 5 ára starfsreynslu. Aðrir starfsmenn Brimborgar, sem Sandrius bar sig saman við hafi hins vegar verið með bæði viðurkennda menntun og lengri starfsreynslu.

„Brimborg sendi fréttamanni Kveiks ítarlegar upplýsingar um ofangreint fyrir útsendingu þáttarins en engu að síður er fullyrt í þættinum að viðkomandi starfsmaður hafi haft menntun og reynslu sem bifvélavirki.“

Er það mat Brimborgar að fyrirtækið hafi „með lævíslegum hætti“ verið sett í samhengi við misnotkun og brot á réttindum erlendra starfsmanna, hælisleitenda, mansalsfórnarlamba og svarta atvinnustarfsemi, þó að það hafi ekki verið nefnt með orðum að Brimborg hafi brotið af sér.

Með þessum fréttaflutning hafi fréttamaðurinn brotið siðareglur RÚV, sem m.a. fjalla um mikilvægi þess að gætt sé sanngirni í framsetningu og efnistökum.

Því fari enda fjarrri að Brimborg tengist brotunum sem fjallað var um „enda er slík háttsemi algerlega í ósamræmi við lög í landinu og gildi félagsins. Af þeim sökum er umfjöllun þáttarins ámælisverð, einkum notkun á myndefni.“

Hjá Brimborg séu „laun, aðbúnaður og vinnuumhverfi framúrskarandi á allan hátt og fyrirtækið ber mikla umhyggju fyrir öllum 300 starfsmönnum sínum, óháð kyni og þjóðerni.“

Fyrrverandi starfsmenn starfsmannaleiga hafi til að mynda lagt mikla áherslu á að vinna áfram hjá fyrirtækinu og Brimborg hafi nýlega fengið staðfest frá þremur af stærstu verkalýðsfélögum starfsmanna að engin mál tengd Brimborg séu þeirra á borðum og að samskipti milli stjórnenda Brimborgar og verkalýðsfélaga séu til fyrirmyndar.

„Brimborg hefur gert allt sem í sínu valdi hefur staðið til þess að tryggja hag erlendra starfsmanna og hvetur Vinnumálastofnun og aðrar opinberar stofnanir til þess að sinna eftirlitshlutverki sínu með heimsóknum og skoðun gagna.  Við hjá Brimborg munum fagna slíkum heimsóknum,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert