Alvarleg staða fram undan vegna niðurskurðar

Fjölmörg hjúkrunarheimili víða um land eru aðilar að samtökunum sem …
Fjölmörg hjúkrunarheimili víða um land eru aðilar að samtökunum sem sjá fram á alvarlega stöðu vegna niðurskurðar. mbl.is/Styrmir Kári

Ekki er ólíklegt að aðildarfélög Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu þurfi að leggja niður ákveðna þjónustuþætti eða breyta rekstrarfyrirkomulagi vegna boðaðs niðurskurðar á greiðslum til félaganna í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV), en þau hafa boðað til félagsfundar á morgun vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem sögð er fram undan í rekstri fjölmargra heilbrigðisfyrirtækja og -stofnana víða um land vegna niðurskurðarins. Meðal aðildarfélaga í SFV eru Grund, Hrafnista og fleiri hjúkrunarheimili víða um land, SÁÁ, Krabbameinsfélag Íslands, MS-setrið og Sólheimar í Grímsnesi.

„Í fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2019 boðar ríkisstjórnin áframhaldandi niðurskurð á greiðslum til flestra aðildarfélaga SFV með sama hætti og þau hafa staðið frammi fyrir undanfarin ár, ekki síst á yfirstandandi ári. Samkvæmt fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar stendur einnig til að skerða greiðslurnar enn frekar árin 2020 og 2021, að minnsta kosti.“

Í tilkynningu segir að þetta komi nokkuð á óvart þar sem í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar sé sérstakleg tiltekið að huga þurfi að rekstrargrunni hjúkrunarheimila.

„Þrátt fyrir boðaða aukningu á framlögum til heilbrigðiskerfisins er augljóst af lestri frumvarpsins að sú aukning er að langstærstum hluta ætluð Landspítala og opinberum heilbrigðisstofnunum. Í frumvarpinu er á hinn bóginn gert ráð fyrir að skera áfram niður rekstrarframlög til hjúkrunar-, dvalar- og dagdvalarrýma þótt ætlunin sé að fjölga slíkum rýmum. Vísbendingar eru um að það viðbótarfjármagn hafi verið vanreiknað auk þess sem ríkisvaldið hefur lagt ýmsar nýjar og fjárhagslega íþyngjandi kröfur á aðildarfélög SFV undanfarin misseri án þess að kröfurnar hafi verið fjármagnaðar af hálfu ríkisins.“

Þá segir að vegna stöðunnar hafi viðræður SFV við Sjúkratryggingar Íslands um nýjan rammasamning um dagsvalir siglt í strand en fundir hafi ekki verið haldnir síðan í mars. Rammasamningur um hjúkrunar- og dvalarrými rennur út um áramótin, en fyrirhugaður samningur er sá langstærsti í sögu Sjúkratrygginga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert