Einn var fluttur á slysadeild vegna gruns um reykeitrun eftir að eldur kom upp í íbúð í fjölbýlishúsi á Seltjarnarnesi fyrir skömmu.
Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu kom smávægilegur eldur upp í einu herbergi í íbúðinni og var búið að slökkva hann þegar slökkviliðið kom á vettvang.
Slökkviliðið er á staðnum og er að reykræsta íbúðina.