Auglýsa um 270 metra Fossvogsbrú

Brúin verður fyrir umferð gangandi, hjólandi og almenningssamgöngur.
Brúin verður fyrir umferð gangandi, hjólandi og almenningssamgöngur.

Bæjarstjórn Kópavogs staðfesti í vikunni afgreiðslu skipulagsráðs bæjarins á tillögu til auglýsingar að deiliskipulagi brúar yfir Fossvog.

Gert er ráð fyrir um 270 metra langri brú yfir voginn frá norðurenda Bakkabrautar á Kársnesi að flugbrautarenda Reykjavíkurflugvallar vestan Nauthólsvíkur.

Markmið tillögunnar er að bæta samgöngutengingar milli Reykjavíkur og Kópavogs og styðja við vistvæna samgöngukosti, segir í fundargerð bæjarstjórnar Kópavogs. Brúin verður fyrir umferð gangandi, hjólandi og almenningssamgöngur, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert