Styðja ákvörðun stjórnenda HR

Háskólinn í Reykjavík.
Háskólinn í Reykjavík. mbl.is/Árni Sæberg

Hópur nemenda við Háskólann í Reykjavík hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem lýst er yfir stuðningi við þá ákvörðun skólastjórnenda að gera lektor við tækni- og verkfræðideild skólans að segja upp störfum en að öðrum kosti vera sagt upp störfum vegna ummæla hans um konur á lokaðri síðu á samfélagsmiðlinum Facebook.

Fram kemur í yfirlýsingunni að nemendur við HR geri þá kröfu til kennara við skólann „að þeir beri virðingu fyrir nemendum af báðum kynjum og að hægt sé að treysta því að allir hafi sömu stöðu þegar kemur að kennslu, einkunnum, aðstoð við nám og annað.“ Hatursorðræða gagnvart konum og öðrum eigi fyrir vikið ekki að líðast í háskólastarfi.

Þeir nemendur sem undir yfirlýsinguna rita, sem eru 18 talsins og þar á meðal stjórnarmenn í /sys/tur, félagi kvenna innan tölvunarfræðideildar HR, segjast sem dæmi að þeir myndu ekki treysta sér til þess að mæta í tíma og fá leiðsögn frá kennara sem hefði opinberlega birt hatursorðræðu gegn konum á hvaða vettvangi sem er.

Nemendurnir segja að slík umræða sé ekki almenn skoðun og fengi ekki að líðast ef hún beindist að minnihlutahópi, til dæmis vegna litarhafts. „Það flokkast ekki undir málfrelsi að viðhafa hatursorðræðu gagnvart konum eða öðrum hópum.“

„Við erum mjög ánægð með viðbrögð HR í nýlegu máli lektors háskólans sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum undanfarið og styðjum þau eindregið. Við þökkum HR kærlega fyrir að bregðast skjótt við og fyrir að setja hagsmuni okkar nemenda í forgang."

Undir yfirlýsinguna rita:

Sjöfn Óskarsdóttir, nemi við HR og varaformaður /sys/tra, félag kvenna við tölvunarfræðideild HR
S. Elín Vilbergsdóttir, nemi við HR og fjölmiðlafulltrúi /sys/tra 
Laufey Inga Stefánsdóttir, nemi við HR og viðburðastjóri /sys/tra
Theodóra Líf Káradóttir, nemi við HR og ritari /sys/tra
Arna Rut Arnarsdóttir, nemi við HR og nýnemi /sys/tra
Petra Kristín Frantz, nemi við HR og gjaldkeri /sys/tra
Hugrún Hannesdóttir, nemi við HR og formaður /sys/tra
Edit Ómarsdóttir, nemi við HR
Arna Björg Jónasardóttir, nemi við HR
Grétar Örn Hjartarson, nemi við HR
Birkir Kárason, nemi við HR
Sigurður Sturla Bjarnarsson, nemi við HR
Katrín Elfa Arnarsdóttir, nemi við HR
Oddný Karen Arnardóttir, nemi við HR
Logi Steinn Ásgeirsson, nemi við HR
Róbert Elís Villalobos, nemi við HR
Lilja Ýr Guðmundsdóttir, nemi við HR
Erla Kristín Arnalds, nemi við HR

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert