Skipstjóri skútunnar handtekinn

Skútan í höfninni á Rifi í kvöld. Þar var einn …
Skútan í höfninni á Rifi í kvöld. Þar var einn maður handtekinn, samkvæmt lögreglunni á Vestfjörðum. mbl.is/Alfons

Skipstjóri skútunnar sem kom að landi á Rifi um kl. 21 í kvöld var handtekinn við komuna þangað af lögreglunni á Vesturlandi. Hann var einn á ferð og er grunaður um að hafa tekið skútuna ófrjálsri hendi í Ísafjarðarhöfn síðustu nótt.

„Skipstjórinn mun verða yfirheyrður og rannsókn málsins heldur áfram,“ segir lögreglan á Vestfjörðum á Facebook-síðu sinni.

Þar eru ekki veittar frekari upplýsingar, en af þessari færslu lögreglu má ráða að maðurinn hafi verið einn um borð í skútunni, sem var um tíma í dag veitt eftirför af varðskipinu Þór og þyrlu Landhelgisgæslunnar. 

Fóru út á báti og handtóku manninn

Fréttaritari mbl.is á Snæfellsnesi, Alfons Finnsson, gat ekki fengið upplýsingar um það hjá lögreglu á vettvangi hvort maðurinn væri íslenskur eða útlendur. Alfons segir að maðurinn hafi verið handtekinn áður en skútan kom til hafnar, en lögreglumenn sigldu út á móti skútunni á björgunarsveitarbáti.

Hann var tekinn höndum og færður að landi áður en skútunni var svo siglt inn í höfnina á Rifi. 

Skút­an ber heitið In­ook og er 40 feta löng. Eig­andi henn­ar er fransk­ur og mun ekki vera stadd­ur hér­lend­is.

Mynd frá vettvangi á Rifi í kvöld.
Mynd frá vettvangi á Rifi í kvöld. mbl.is/Alfons
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert