Karlar búa lengur á hóteli mömmu

Ungar konur flytja fyrr að heiman en karlar.
Ungar konur flytja fyrr að heiman en karlar. AFP

Karlar búa mun lengur í foreldrahúsum en konur. Fimmtungur fólks á aldrinum 25-29 ára bjó enn í foreldrahúsum árið 2016. Tæp 25% karla og tæp 16% kvenna á þessum aldri. 

Munurinn milli karla og kvenna er tölfræðilega marktækur sé litið til lengri tíma en ekki fyrir einstök ár, segir í frétt á vef Hagstofu Íslands. Til dæmis  bjuggu að meðaltali 26,8% karla á aldrinum 25-29 ára í foreldrahúsum og 14,3% kvenna á sama aldursbili þegar meðaltal áranna 2014-2016 er skoðað og er sá munur tölfræðilega marktækur. Þetta er meðal þess sem lesa má úr nýbirtum niðurstöðum lífskjararannsóknar Hagstofu Íslands.  

Hlutfall fólks á aldrinum 25-29 ára sem býr í foreldrahúsum er breytilegt eftir Evrópulöndum. Árið 2016 reyndist hlutfallið hæst í Króatíu (74,5%) en meðaltalið innan Evrópusambandsins var 38,6%. Hlutfallið á Íslandi (20,3%) var áttunda lægsta af þátttökulöndum lífskjararannsóknarinnar en meira en tvöfalt hærra en á hinum Norðurlöndunum sem röðuðu sér í fjögur neðstu sætin. Í Danmörku bjuggu tæp 5% fólks á aldrinum 25-29 ára í foreldrahúsum, 6% í Finnlandi og 9% í Svíþjóð og Noregi. 

Á Íslandi flytja konur fyrr úr foreldrahúsum en karlar, eins og í Evrópu allri. Þegar litið er á aldurshópinn 20-29 ára reyndust 34,4% kvenna  og 44,1% karla búa í foreldrahúsum árið 2016. Þegar þróunin er skoðuð frá upphafi lífskjararannsóknarinnar, árið 2004, sést að hlutfall ungra kvenna í foreldrahúsum hefur aukist síðan það var lægst árið 2005. Hlutfall ungra karla í foreldrahúsum hefur nokkurn veginn staðið í stað á sama tímabili.

Sjá nánar á vef Hagstofu Íslands

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert