Harður árekstur á Reykjanesbraut

Fólksbíll og sendibíll rákust saman á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar …
Fólksbíll og sendibíll rákust saman á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar í hádeginu. Þrír voru fluttir á slysadeild. Ljósmynd/Aðsend

Harður árekstur varð á gatnamótum Bústaðavegar og Reykjanesbrautar um hádegisbil. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu skullu lítill fólksbíll og minni sendiferðabíll harkalega saman.

Unnið er að því að flytja þrjá á spítala til aðhlynningar. Meiðsli tveggja eru minni háttar en sá þriðji er ívið meira slasaður. Einn dælubíll og þrír sjúkrabílar eru á vettvangi. Búast má við töfum á umferð á meðan vinna stendur yfir á vettvangi. 

Uppfært klukkan 13:54: 

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu voru báðar bifreiðarnar fjarlægðar með kranabifreið. Búið er að opna fyrir umferð um svæðið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert