Skútuþjófurinn í farbann

Hvarf frönsku skútunnar Inook uppgötvaðist aðfaranótt sunnudags.
Hvarf frönsku skútunnar Inook uppgötvaðist aðfaranótt sunnudags. Ljósmynd/Torfi Einarsson

Héraðsdómur Vestfjarða hefur fallist á kröfu lögreglustjórans á Vestfjörðum um að maðurinn sem sigldi seglskútu í heimildarleysi úr höfn á Ísafirði aðfaranótt sunnudags sæti farbanni.

Farbannið gildir til 12. nóvember.

Fram kemur á Facebook-síðu lögreglunnar á Vesturlandi að rannsókn málsins miði vel.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert